Almennt:
Mótorhjól.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig vegna breytinga á verðum frá heildsala eða hætt er að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Afhending vöru:
Ekki eru allar vörur sem Mótorhjól.is selur til á lager hér á Íslandi. Við gefum okkur 7-10 virka daga til þess að útvega vörur, nema við gefum annað til kynna í tölvupósti eða síma. Stundum eru vörur aðeins þrjá daga á leiðinni og stundum 7-10 daga. Mótorhjól.is reynir eftir fremsta megni að láta viðskiptavini vita hvenær er von á vöru þeirra.
Vöruskil á ógölluðum vörum:
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt og miðast skiladagur vöru við afhendingardag. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið.
Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta (kreditreikningur) eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan gildir í eitt ár frá útgáfudegi og er gild við almenn vörukaup nema á útsöluvörum eða vörum á sértilboði. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Einnig er hægt að skipta vörunni ef hún passar ekki. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegu umbúðunum. Ný vara er send um leið og varan sem passaði ekki berst til Mótorhjól.is. Mótorhjól.is borgar sendingarkostnaðinn (þ.e.a.s. til viðskiptavinar) þegar vöru er skipt í fyrsta skiptið. Frestur til að skipta vörunni eru 14 dagar frá því upprunalega varan afhent. Best er þó að hafa samband í tölvupósti á info(hjá)motorhjol.is eða hringja í 552-9300 / 777-9300 ef einhverjar spurningar vakna. Mótorhjól.is leggur sig fram í að gera viðskiptavini ánægða
Ábyrgð:
Samkvæmt landslögum veitir Mótorhjól.is 2ja ára neytendaábyrgð á öllum þeim vörum sem seldar eru í netverslun Mótorhjól.is. Flestar vörur eru með ábyrgð framleiðanda á bakvið sig en við munum gera allt í okkar valdi til að leysa úr þeim vanda sem upp kann að koma. Vinsamlega sendið tölvupóst á info(hjá)motorhjol.is ef þörf er á nánari upplýsingum varðandi ábyrgð.
Kaupandi þarf sjálfur að standa straum af kostnaði við að koma gallaðri vöru til viðgerðar og sækja hana úr viðgerð.
Ábyrgð er ekki tekin á:
1. Eðlilegu sliti vörunnar
2. Afleiddu tjóni vegna bilunar vöru.
Greiðslumöguleikar:
Hægt er að greiða fyrir vörur með greiðslukorti eða leggja (greiða) beint inn á bankareikning SRK ehf. í heimabanka eða bankaútibúi.
Verð, skattar og gjöld:
Verð geta breyst án fyrirvara. Öll verð eru með 25,5% VSK og birt með fyrirvara um innsláttarvillur.
Trúnaður:
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Eignarréttarfyrirvari:
Hið selda er eign seljanda þar til verðið er greitt að fullu. Samþykktir víxlar, skuldabréf eða greiðsla með ávísunum afnema ekki eignarréttinn fyrr en full greiðsla hefur borist.
Höfundarréttur:
SRK ehf er rétthafi af öllu því efni sem birt er í netverslun Mótorhjól.is. Erlend vörumerki á síðunni eru í eigu viðkomandi erlends aðila. Vörumerkið Mótorhjól.is er í eigu SRK ehf.
Skilmálar þessir eru verslunarskilmálar Mótorhjól.is og tóku gildi þann 1.September 2010. Skilmálar þessir teljast samþykktir af hálfu viðskiptavinar(kaupanda) þegar viðskipti hafa átt sér stað á milli kaupanda og seljanda(Mótorhjól.is)
Engar vörur
Sendingarmáti
kr 0
Samtals
kr 0









